Toppan Bloggar

Toppan (nákvæmlega)

12.03.2009 21:27:58 / Tobba

Facebook!!!

Jæja vá hvað ég er ekki búin að pæla í þessari síðu síðan ég kynntist Facebookinu :d
Ég held bara að allur Tölvuheimurinn hafi lamast hjá manni !
ÉG hreinlega kveiki á Tölvunni og fer beint inn á facið og jú og Veðrið á MBL !
Tölvupóstur 8| Hvað er það ??? Er bara í lagi að það bíði 50 póstar eftir manni þegar maður fær hugmynd um að það sé kannski áríðandi póstur frá Skólanum hjá strákunum eða fótbolta og sundæfingarpóstur !? heheh ÉG hafði nú vit á því að taka Facebook tilkinningarnar út af Póstlistanum hjá mér fjúkkkk :evil: Var að verða vitlaus á öllum þessum tilkinningum sem að ég sá hvort eð er þegar ég fór inn á Facið ( DAGLEGA )
Jæja datt svona bara í hug að skella inn smá færslu fyrst að ég álpaðist inn á þessa elskulegu síðu mína :lol:Er farin aftur inn á Facebookið heheh


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 19:51:52 / Tobba

Gleðilegt nýtt ár !!!

Jæja Elsku vinir og vandamenn !
Vildi Byrja á því að bjóða ykkur Gleðilegs nýs árs og Þakka fyrir allt gamallt og gott :d
Vá hvað ég er búin að hafa það gott um Jóli og í þessu frábæra fríi sem að ég var í ! Vorum bara heima á Aðfangadag og elduðum eins og vanalega svakalega góðan Hamborgarahrygg með öllu tilheyrandi (=
Svo fórum við í Hangikjötið til Mömmu og pabba á Jóladag !
Það klikkar ekki,alltaf svo gott að borða hjá Gömlu Hjónunum (=
Annar í Jólum fórum við svo til Magga Bróðir og fengum yndislega góða Kalkúninn hjá þeim Hjónum ;)Namm Namm Fæ bara bragðið af fyllingunni í munnin við að hugsa um hann.
Svo var ég svo heppin að yndislegu synir mínir ásamt pabba gáfu mér nýjan Hest í Jólagjöf 8|
Guð hvað ég var glöð með hann ég var nefnilega búin að segja allri Hestamennsku af mér í vetur útaf því að Benni er að fara að temja úpp í sveit og ég var ekki að nenna að keyra alltaf upp í sveit eftir vinnu til að fara á bak :whut:En haldið þið ekki að þessar elskur hafi ekki bara fengið pláss fyrir klárinn í Æðaroddanum svo að ég geti riðið út á Skaganum í vetur :d Svo að núna fer ég á hverjum degi í Hesthúsið eftir vinnu ! Er ekki frá því að þetta hafi bara bjargar fyrir mér vetrinum !!
Jæja verð að fara að koma mér í Saumó
svo að ég segi bara bæjó í bili !!!




» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 10:21:08 / Tobba

Undirbúningur fyrir jólin

Guð það er alltaf að styttast í Jólin svo að ég ákvað að vera dugleg í ár og skrifa Jólakortin snemma svo að þið fáið nú kort frá okkur Fjölskyldunni :lol:
Ég er semsagt búin að skrifa ca,30 kort og var allveg viss um að ég væri bara búin að skrifa til allra :d En svo fór mín að gramsa og fann kort sem ég hafði fengið 2004 :d Þá fann ég sko helling í viðbót svo að Það bættust hvorki meira né minna en 19 stykki við . Svo að ég brunaði í RL MAGASÍN og keypi nokkur kort í viðbót !
Jæja svo er ég hálfnuð með Gjafirnar og er svona að týna saman smátt og smátt fleiri gjafir ;)
Ég er með hausinn á kafi í wc skálinni að reyna að finna eitthvað sniðugt fyrir hana elsku Rakel mína sem er og verður í nýja Sjálandi framm í mitt næsta ár 8| Hugsið ykkur ! Hvað á maður að senda þessari elsku endilega komið með sniðugar  hugmyndir ég sit föst í skálinni heheheh!
Jæja ég er að spá í að fara að hætta í bili og fara að gera eitthvað af viti :haha:



» 5 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 19:52:43 / Tobba

Fleiri börn hjá kiddaklúbbnum mínum ! GAMAN !!

Jæja þá getum við hætt að bíða eftir litla erfingjanum hjá Ester og Hauki :d

Það kom nefnilega lítill drengur í hópinn í gærkvöld ! Fimmtándi strákurinn hjá okkur Kiddagellum :lol:

Elsku Ester og Haukur
Til hamingju með soninn :haha:
Hlakka svo til að hitta ykkur öll

ÁSTARKVEÐJA Tobba


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 21:27:09 / Tobba

bla bla bla

Jæja ég get ekki verið endalaust LASARUS !
Annars er voðalega lítið að frétta af okkur hérna á Skaganum !
Það er annars alltaf nóg að gera  í vinnunni við erum komnar með 7 yndisleg kríli til okkar svo að maður er komin í vinnu um kl 7,30 á morgnana og er að dúlla sér með Gullmolunum sínum til 4,15 á daginn
Það er alveg ótrúlegt hvað maður tekur miklu ástfóstri við þau .
Við erum með 6 dásamlega grallara og svo er ein prímadonna í hópnum ! Getið þið hugsað ykkur Dekurrófuna :d
Jæja nóg um öll börnin mín !
Það er líka nóg að gera í kring um mína eigin drengi Bjarni þór er notttla Djúft sokkinn í Fótboltanum og stendur sig bara rosalega vel og eins í Skólanum ÆÐI (stollt mamma)
Guðni Rafn er á fullu að æfa sund og fer 4 sinnum í viku í laugina hann er semsagt á æfingum á Mánudögum og fimmtudögum og fer svo á þriðjudögum með Sérdeildinni og á föstudögum í Skólasundið svo að það má eiginlega segja að hann sé alla daga vikunnar í bleyti ;) Svo er hann að standa sig mjög vel í Skólanum og hann er byrjaður að lesa og skrifa stafina . Ég er mjög ánægð með hvað hann er að standa sig vel í að læra stafina miðað við að vera Heyrnarlaus ! Hann lætur sko ekkert stoppa sig 8|
Jæja af mér er annars bara voða rólegt að f´retta ég er bara að bíða eftir því að andinn komi yfir mig og reki mig á stað í Hesthúsið að gera eitthvað sniðugt Ég segi það ekki að mig er farið að klæja í puttana að skella mér í drullugallan og moka smá skýt :haha:
Jæja var að fá gesti svo að ég verð víst að fara að fá mér kaffi með þeim
BLESS Í BILI




» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 21:17:14 / Tobba

Lasarus!

Jæja það er nú voðalega lítið að frétta hjá minns !
Ég er búin að vera að drepast úr kvefi hósta og Kinnholsbólgum !:klikk:
Svo var ég svo slöpp í allan dag að ég skellti mér bara til Doktor Saxa og fékk smá skammt af pillum (síkló) Já og eitt glas af þessum fína drykk sem er rót sterkur 8| Hann á víst að lækna hóstaköstin mín :whut:
Úr ein í annað !!!! Haldið þið ekki að gamla konan hafi dregið Mákonuna sína hana Fríði ósk að hjóla í gærkvöld!!! ÆÐI!!!! Við Hjóluðum alla leið upp í hesthús og til baka ,ca,6 kílómetrar :d
Það var bara æði í grenjandi rigningu og smá roki :lol: Svo að það er kannski ekkert skrítið að gömlu hafi hrakað smá í heilsunni !!! En það er nú bara Föstudagur á morgun svo er komið helgarfrí ! og þa´læt ég mér bara batna á meðan ég hjápa yndislegu foreldrum mínum að flytja í nýu íbúðina sína !:d
Jæja er að deyja svo að ég er að spá í að leggjast upp í sófa og horfa á karlinn minn setja saman sjónvarpskáinn sem Tengdó náði í fyrir okkur til Rvk í dag!
KVEÐ Í BILI EIN LASIN Á SKAGANUM



» 3 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 22:26:05 / Tobba

Jæja

Jæja þá er blessaður veturinn kominn með tilheyrandi roki og rigningu jú og ekki má gleyma ógeðslega Kvefinu:(

Allavega það er voða gott að allt sé komið í rétta rútínu ,Skólinn æfingarnar og vinnan . Hann GUÐNI RAFN MINN á 6 ára afmæli í dag voða spenntur að vera orðin 6 ára !

Hann er kominn á fullt í Skólanum sínum( Brekkubæjarskóla ) bekkurinn hans heitir 1 sk .
Svo fer hann stundum í heimsókn í Sérdeildina og eftir skóla fer hann til þeirra í staðin fyrir að vera í dagvistinni en við erum ekkert viss um að hann myndi þola lætin þar. Svo að við erum bara voða sátt við þetta allt saman !

Svo er drengurinn byrjaður að æfa Sund hjá ÍA ! svo að hann fer 4 sinnum í sund á viku :haha: Rosalega Duglegur !

Svo er það hann Bjarni minn ! Hann er rosalega Duglegur strákur og er með allt sem heitir Fótbolti á Hreinu hvort sem það er Enski eða Íslenski boltinn ;)

Honum gengur rosalega vel í Skólanum eins og hann er vanur að gera ! Hann svoleiðis hakkar í sig lestrarbækurnar og hefur gaman af því að lesa !

Ég er svo byrjuð að vinna aftur og er voða ánægð með það .Við erum að vísu skráðar með 10 barna leyfi en við höfum bara 6 svo að ég auglýsi eftir Börnum til okkar ! Vitið þið um börn , HEHEH !

Jæja ég er allgerlega að kafna úr kvefi og hori svo að ég er að spá í að far að sofa í hausinn á mér

Kveð í bili Tobba kvef






» 2 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 15:25:27 / Tobba

Sumarfrí

Jæja þá er ég komin í Sumarfrí8)
Við Sonja unnum síðasta daginn okkar
á föstudaginn !
Það er aiginlega hægt að segja að
þetta hafi verið dagur bæði sorgar og gleði!
Við vorum á kveðja hópinn okkar sem er
að fara í Leikskóla :cry: Elsku snúllurnar mínar Gangi ykkur
vel í nýja hlutverkinu ykkar ;)
Svo fengum við fullt af kveðjugjöfum TD,Rósir Kertastjaka Gjafarbréf
í Kringlunni og svo kveðjubréf :| Vá maður fékk bara tár í augun !
Elsku Foreldrar takk fyrir !
Jæja ég fer ekki að vinna aftur fyrr en 1 Sept.
Við erum búnar að fá Húsnæði fyrir daggæsluna
Hún Tengdarmamma ætlar að leigja okkur íbúðina sína
svo að nú er nóg að gera hjá okkur í f´riinu að undirbúa okkur
fyrir haustið !
Þetta verður æði að komast á Jarðhæð og geta leyft börnunum að
fara labbandi út í garð:d
Ekki að bröllta þeim niður tröppur og svo inn í gar en það er alveg ótrúlegt hvað Börnin eru dugleg að læra ;)
Jæja Benni minn var að fara í Hestaferð á fimmtudaginn var þeir ætluðu að fara ríðandi inn í Húsafell en greiið komst ekki lengra en 200 metra þegar hesturinn hljóp ofan í holu og hrundi niður og yfir Benna :( Hann verð að fara upp á sjúkrahús til að láta líta á fótinn og komst að því að pýpurnar í ristinni höfðu glyðnað:klikk: FRÁBÆRT !!! Daginn áður en ég fer í Sumarfríið og ætlaði að fara ríðandi með þeim :evil:
Þannig að nú er Benni greyið hoppandi um á Hækjum :cry:
En hann er nú ekki í Gifsi svo að þetta á að taka hann svoan 2-3 vikur að jafna sig !
Jæja úr einu í annað !
Skagamenn fagna í dag vegna þess að það er búið að REKA kjánann hann Guðjón Þórðar frá Ía og vonandi koma tvíburarnir ARNAR OG BJARKI inn og trukka svondið á þessa drengi okkar ;)
ÁFRAM ÍA !!!!
ÉG var nú búin að halda því framm að ég skildi bara fara að halda með Blikunum eða HK
þar sem að eg er alin upp í Kópavoginum !

Jæja rokin í bili !!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2008 23:03:43 / Tobba

Sonurinn byrjaður að blogga

Jæja ég tók mig til og bjó til bloggsíðu fyrir hann Bjarna þór um daginn !
Ég bjóst nú ekki við því að hann mundi sýna því áhuga
En viti menn drengurinn er bara nokk duglegur :lol:
Hann er líka bara nokk fyndinn þegar maður er að fara yfir þetta hjá honum :haha:
Hann gerir þetta alveg sjálfur ég er bara hissa á því hvað hann er duglegur að fykta sig áfram !
Endilega kíkið á síðuna hjá honum!
bjarni-ben.blogcentral..is
ég kann ekki einusinni á setja linkinn hans hér inn svo að þig getið smellt á hann :$
en það er aldrei að vita nema að sonurinn kenni mér það bara eitthvern daginn:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.07.2008 21:46:03 / Tobba

Óska eftir videói fyrir spólur !

Jæja um síðustu helgi skellti ég mér með fjölskyldunni á Ættarmót í Stokkseyri !
Við Sonja vorum búnar að sjá fyrir okkur að við myndum geta Tjaldað í skjóli og hefðum mikinn Gróður í kring um okkur :lol: Ætluðun aldeilis að liggja og sóla okkur í Góða veðrinu sem var sko búið að vera alla vikuna hjá okkur !
En NEI !!!! Þegar við komum inn á Tjaldstæðið fæellust okkur allveg hendur ! Þetta var bara eins og að við værum komnar á eyðimörk ekki einn helvv,,,,,, Tré í kring um okkur :whut:En það þýðir ekki að gráta Björn bónda svo að við skelltum bara upp Fellihýsinu sem Við og Fríður mákona gistum í,ásamt Sigga hennar og Matthíasi litla frænda .  Svo var farið í að Tjalda Hústjaldinu hjá Simma og Sonju og Börnum !
Við höfðum það bara voðalega kósý þó að það hafi verið rok á okkur alla helgina .
Á Föstudagskvöldið fannst mér Guðni Rafn vera orðin svoldið heitur og var svo að vona að hann myndi ekki verða lasin en jú jú á Laugardagsmoruninn var hann komin með hita og var með hita alla helgina en ég lét að þú ekki stoppa okkur í að fara aðeins og hitta fólkið hans Benna og við náðum að fara að skoða Dýrasafnið þar sem eru uppstoppuð allavega dýr td, Gíraffaháls með hausnum á að sjáfsögðu og Krókódíll ,Ísbjörn Buffalóar og Seprahest já og Hreysiköttur sem heillaði hann Bjarna minn voða mikið !
Við Guðni Forum svo bara upp í Fellihýsi að leggja okkur á meðan fólkið fór í Draugasetrið og að skoða Ævintýralandið !
Þetta var bara voða fín helgi þótt að Guðni hafi verði veikur allan tímann
Núna er ég bara að vona að Veðurspáin sé eitthvað að rugla svo að ég geti farið á Landsmótið á Hellu á Föstudaginn og verið í Bústaðnum hjá múttu en það er víst allt að verða vitlaust þar núna allir að pakka niður og loka Fellihýsum vegna þess að það er brjálað veður á svæðinu og hann er víst búin að spa þessu yfir alla helgina !
Það er annað hvort að fara í blíðuna á Hellu eða hafa það bara kósý á Írsku Dögunum hérna heima á Skaga kannski bara skella sér á Lopapeysuna !
Jæja er rokin í bili Biðjum saman fyrir sól og blíðu um allt land fram yfir helgina !
Kveðja Toppann !

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 22:28:38 / Tobba

Brjálað að gea hjá manni !

Jæja nú fer ég alveg að fara að setjast niður og koma með frétta pakkann fyrir ykkur !
en ekki alveg strax !;)
Bið bara að heilsa ykkur í bili
JÁ og Lára mín ég hugsa til þín og bíð bara eftir að fá fréttir af fæðingunni :d

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 14:41:17 / Tobba

Tengdamamma 50 ára

Jæja þá er hún Tengdó orðin 50 ára blessunin !
Hún var alveg ákveðin í því að vera ekki á Landinu á sjálfan Afmælisdaginn heldur ætlaði hun að vera í París með kærastanum :)
En áður en að hun vissi af þá kom bara 8 maí og hun var ekki farin út svo að hún tók sig bara til og bauð Börnunum sínum og Tengdabörnum bara í Leikhús á Sýninguna Briljant Skilnaður með henni Eddu Björgvinsdóttur :d
Þetta var bara briljant sýning en ég hef að vísu voða lítið gaman af svona einleik en það bjargaði alveg að mér hefur alltaf fundist Edda alveg brill kelling :haha: Ég féll alveg fyrir henni í myndinni um Stellu í orlofi og eins í Framboði svo að ég get alls ekki kvartað .
Fyrir sýninguna fórum við með Tengdó og kærastann að borða á Kringlu kránni (namm namm) svo að þetta var bara voða næs kvöld líka bara gaman að vera svolítið saman öll 8 ;)
Jæja Við Sonja svilkona og Fríður mákona tókum okkur til og fengu okkur aðeins í glas í gærkvöld og skemmtum okkur bara svaka vel við skruppum niður á Kaffi mörk og það er alveg ótrúlegt hvað maður getur alltaf skemmt sér vel þarna niðurfrá á þessum líka þreytta stað :lol: Jæja svo er bara nóg um að vera í bænum núna tildæmis er fyrsti Heimaleikur okkar Skagamanna núna á móti Blikum og ég get svarið það að ég Heyrði hingað heim þegar fyrsta markið kom er að vísu ekki viss um hvort liðið skoraði en vona bara svo innilega að við vinnum leikinn :lol:
Jæja verð að fara að gera mig klára fyrir Kaffi hjá þeirri 50tugu
bæ í bili


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 12:51:39 / Tobba

Taka 2 !!!

Jæja ég er að spá í að gera aðra tilraun !
Það er nú eitthvað lítið að frétta af mér og mínum
Ég er bara alltaf að vinna með henni Sonju minni
og börnunum okkar 10 (Dagmamma)
Svo fer maður bara beint í hesthúsið eftir vinnu
allavega svona suma dagana .
þá daga sem það liggur vel á honum Guðna Rafni mínum
ég get nú ekki neitt 5 ára gamalt barn til þess að hanga í Hesthúsunum
alla dga vikunar " ;)
Allavega ég var að eignast mitt fyrsta Folald :lol:1 maí svaka stollt !!
Ég fékk hest Rauðan með stjörnu :d Hefði nú samt ekkert haft á móti því að fá meri
en kannski bara seinna !8)
jæja ég verð að fara að hæta í bili !




» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 22:13:54 / Tobba

Má bara ekkert vera að þessu )=

Jæja kæru vinir !

Ég er allveg búin að sjá það að ég er bara ekkert að gefa mér tíma í þetta blogg.

Ég ætla bara að fara í frí og sjá svo bara til hvað ég nenni að gera seinna .

Ég ætla líka bara að setja Barnalandssíðuna í pásu )=

Ég veit nebbla ekkert eins leiðinlegt og að skoða síður sem ekkert er að gerast á =/

Ef að þetta fer eitthvað fyrir brjóstið á ykkur þá er bara hægt að hringja í mig eða bara

hreinlega kíkja í kaffi á mig á Skagann

Hafið það gott kæru vinir !

kv, Tobba upptekna

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 20:18:16 / Tobba

Ester mín !

Til hamingju með afmælið elsku Ester mín !:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.